Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

föstudagur, október 21, 2005

Ekki minn dagur

Það má svo sannarlega segja það að síðastliðinn sólarhringur hafii bara hreint ekki verið minn dagur!

Þetta byrjaði allt saman á því að ég fór í skólann í gær - fylgdist með í tíma, tók niður glósur og svona. Svo fór ég heim. Þegar ég kveiki á tölvunni aftur þá kemur bara svartur skjár og einhver villuboð þess efnis að tölvan finni ekki harða diskinn!!
Great!!! Tölvan biluð!!!
Svo ég fer með hana niður í EJS í viðgerð - vonandi!!! Bind miklar vonir við að þetta sé bara einhver minniháttar bilun sem þeir kippi í lag á no time! Óttast jafnmikið að tölvan mín sé bara game over með öllum þeim gögnum sem ég hef troðið í hana á einu og hálfu ári!!! Allavega - í EJS var mér jafnframt sagt að það væri mjög mikið að gera núna - það væri trúlega um 4 virkra daga bið!!!

Þetta gæti ekki hafa gerst á verri tíma því þessa vikuna og næstu er verið að kenna kúrs sem ég er í og hann er bara helmassaður á 2 vikum - svo er hann bara búinn. Það þarf varla að taka það fram að í kúrs sem er keyrður svona áfram þarf maður að mæta í tíma, fylgjast vel með og glósa! Erfitt að gera það tölvulaus!
Nú, svo er ég að fara að vinna um helgina og þar hefði ég kosið að hafa tölvuna mína - sérstaklega þau gögn sem í henni voru!
Síðan en ekki síst þá á ég að skila heimaverkefni á eftir. Einhverju leiðinda excel-tölfræði verkefni. Það þarf vart að taka það fram að ég var búin með verkefnið - en það var í tölvunni!!! Svo ég mátti gjöra svo vel að fara heim til m&p í tölvuna þar og endurgera verkefnið!!!

Nú, þegar ég var búin að gera þetta verkefni á speedy gonzales hraða brunaði ég niðrí Frímó að vinna. Það var nú svosem ekkert að því - en ég var að vinna til rúmlega 12 og þá átti ég eftir að fara til m&p og fá lánaða fartölvuna þeirra (svo ég gæti nú eitthvað glósað í dag), fara heim og klára að hreinskrifa verkefni fyrir daginn í dag og eitthvað svo ég var ekki farin að sofa fyrr en rúmlega 1.

Síðan var skóli kl. 8 í morgun og orð fá því ekki lýst hvað það var erfitt að vakna og koma sér á fætur í morgun! Það tókst samt einhvernveginn og ég truslaði mér út í skóla á réttum tíma.
Þegar þangað er komið, ég búin að taka upp tölvuna og ready fyrir tímann fór ég svona aðeins að spá - bíddu, þetta er ekki sami kennari og var síðast...
Þessi kúrs - lífeðlisfræði innri líffæra - er semsagt 3. árs sjúkraþjálfunarkúrs og við erum 2 í honum sem erum ekki í sjúkraþjálfun. Strákurinn sem er ekki í sjúkraþjálfuninni þarna með mér fer eitthvað að spurja mig hvort það sé ekki örugglega lífeðlisfræði núna og við förum eitthvað að ræða þetta en niðurstaða var sú - jú, lífeðlisfræðin á að vera núna, kl. 8:15.
Nei nei, þá segir kennarinn að þær hafi skiptst á tíma - núna sé sjúkraþjálfunarfræði en lífeðlisfræðin sé kl. 9:40! - "Það skiptir hvort sem er engu máli klukkan hvað hvor kúrs er!"
Ég - nett - bilaðist!!! Spurði hana hvort það hefði bara alls ekkert hvarflað að þeim að láta fólk vita af þessum breytingum - það væru ekki allir hérna í sjúkraþjálfun - það væru þar af leiðandi ekki allir að fara í sjúkraþjálfunarfræði!!!!!!!
"Óóóóóóóó - eru aðrir nemar hérna líka?! - Það er allt í lagi - þú getur bara farið í verklegu stofuna og lagt þig!"
Vitiði - ég var svo ógeðslega pirruð - ég var næstum því farin að gráta úr reiði!!!
- Ég gat ekkert farið og lagt mig - ég ætlaði að fara í þennan tíma, þurfti svo að fara heim og undirbúa mig fyrir verklega leikfimitímann sem ég átti að fara að kenna kl. 11!!! Þessi helv... breyting sem þær tvær gerðu - "því það skipti engu máli" - gerði það að verkum að ég var í tíma til 11 - ég brunaði upp í leikfimihús og hentist í önnur föt - en var samt of sein! Og það var alveg greinilegt að það var eitthvað sem kennarinn kunni ekki vel að meta!!!!!

AAAAAARRRRRRRGGGGGGGGG!!!!!!
Mig langar mest að fara heim til mín, leggjast undir sæng og skríða bara út rétt fyrir jólin!!!
Ég þoli ekki svona daga!!!!

Stelpan