Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, október 03, 2005

Frændsystkinapartýið

Já, Garðar frændi tók sig til á laugardaginn og hélt partý fyrir okkur frændsystkinin.

Hann gerði það nú líka til að slá tvær flugur í einu höggi - þarna tókst honum að bjóða okkur öllum í heimsókn á nýja pleisið með minniháttar fyrirhöfn.
Ég veit að hann var eiginlega að vonast til að slá þrjár í einu með því að fá eitthvað af mæðrunum í heimsókn líka en það varð því miður ekkert úr þeim plönum hjá honum - ætli hann neyðist ekki til að bjóða þeim sér í kaffi og vöfflur við tækifæri!

Annars tókst partýið með eindæmum vel - full mæting og allir í gírnum.
Sumir voru í aðeins betri gír en aðrir og verð ég að segja - fyrir mína parta - að toppurinn á partýinu var þegar Hörður og Þorsteinn voru með sýnikennslu á nægjusemi sinni hvað varðar svefnpláss! Það eina sem þeir þurfa er smá gólfpláss - og það er gott að fara líka úr peysunni!
Nú, svo hnepptu þeir frá sér skyrtunum og lögðust þétt upp við hvorn annan á gólfið í einskonar fósturstellingu!

Ótrúlega heilbrigð fjölskylda!!

Stelpan