Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

fimmtudagur, október 27, 2005

Minning

Ástkær tölva mín lést í svefni á heimili sínu fimmtudaginn 20. október síðastliðinn!

Þeim sem vilja minnast hennar er bent á syrgjandi eiganda - en tekið skal fram að blóm og kransar eru ekki afþakkaðir!

Fyrir hönd eiganda og allra þeirra sem góðs nutu af downloadi, glósum og öðru því sem hún hafði fram að bera,
Halldóra Brynjólfsdóttir


Vegna staðfestingar tölvugaurs EJS á andláti tölvu minnar finnst mér við hæfi að skrifa örfá orð í minningu hennar!

Ég fékk tölvuna mína eftir óþreyjufulla bið í febrúar 2004. Síðan þá hefur hún veitt mér mikla gleði og hjálpað mér meira en orð fá lýst í skólagöngu minni og tel ég það nokkuð öruggt að hún eigi stóran þátt í því að mér tókst að útskrifast með hreinni prýði í vor!

Að sama skapi mætti þakka tölvunni minni fyrir tilveru þessarar bloggsíðu - en án tölvunnar hefði þessi síða aldrei verið stofnuð.

Nú sit ég – bókstaflega með tárin í augunum af svekkelsi yfir því sem nú er tapað og aldrei fæst aftur og skrifa þessa litlu kveðjugrein, en það sem ég vil virkilega segja er - tölva – takk fyrir allt!


Ég sé það líka núna hversu ömurlegur eigandi ég var en tölvan mín hafði ekki einu sinni nafn! En ég mun bæta úr því með nýju tölvuna sem tók við af þeirri gömlu og héðan í frá mun hún – nýja tölvan mín – heita Lísa!

En, ég ætla að láta þessa stuttu minningargrein um tölvuna mína duga og ég þakka allar þær samúðarkveðjur og allan þann stuðning sem mér hefur verið sýndur!

Stelpan