Mánudagar
Var að koma heim úr skólanum - drepleiðinlegum tíma by the way.
Á leiðinni heim eru 11 umferðarljós að meðtöldum gangbrautarljósum (já ég taldi).
Ég lenti á rauðu ljósi á 9 af þessum 11 ljósum - og að auki þurfti ég að bíða 2 ljós í eitt skiptið svo í það heila beið ég á 10 rauðum ljósum þessa tiltölulega stuttu vegalengd frá vesturbænum og heim á Laugarveg!
Ég hata íslenska umferðarmenningu!!!
Svo kom ég heim og þá var hringt í mig frá KB-banka og ég yfirheyrð um viðbótarlífeyrissparnað!
Ég vil taka það sérstaklega fram að fyrir var búið að hringja þrisvar í mig frá KB-banka út af þessum viðbótarlífeyrissparnaði!
Ég útskýrði fyrir stelpunni - mjög dónalega - að ég væri nemi, það væri engin viðbót af mínum launum/námslánum til þess að spara og að ég væri búin að segja þeim þetta þrisvar sinnum!!!!!
Ef það verður hringt í mig eina ferðina enn og ég spurð út í þennan helv... viðbótarlífeyrissparnað þá brjálast ég og ég ábyrgist að hausar munu fjúka!!!
Grettir á kollgátuna - ég hata mánudaga!!!
Stelpan

<< Home