Auglýsing
Ég auglýsi hér með eftir einhverjum sem er reiðubúinn að taka að sér eitthvað af heimaverkefnunum mínu, mæta í nokkra tíma fyrir mig og leysa mig af í vinnunni 1 eða 2 kvöld!
Ég er bara að springa - það er fáránlegt hvað það er alltaf mikið að gera í nóvember!
Ef það væru kannski 2 auka tímar í sólarhringnum myndi þetta sleppa til - ég myndi jafnvel sætta mig við bara 1 auka tíma - en núverandi fyrirkomulag er ekki að ganga upp hjá mér!
Ég sit núna í leiðindatíma dauðans að gera 2 verkefni úr öðrum kúrsum! Eina ástæðan fyrir því að ég mæti í þessa tíma er sú að það er skyldumæting - þar sem þetta er próflaus áfangi er í sjálfu sér engin sérstök ástæða til að fylgjast vel með og glósa.
Að sama skapi biðst ég afsökunar á bloggleysi - um leið og það verður búið að bæta inn auka klukkutíma í sólarhringinn skal ég vera miklu duglegri að skrifa!
Stelpan

<< Home