Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

föstudagur, nóvember 18, 2005

Blakmeistari

Víííí - ég var að koma úr svo skemmtilegum leikfimitíma!

Við erum semsagt búin að vera í einskonar verklegum leikfimitímum í þjálffræði - 2 0g 2 saman eiga að halda einn tíma - upphitun, aðalæfing, teygjur o.þ.h.
Nema hvað - nú voru allir hóparnir búnir svo kennarinn leyfði okkur að hafa frjálsan tíma.
Málið er að í þessum bekk er slatti af strákum sem eru bókstaflega að springa úr orku og keppnisskapi og það lá beinast við að þeir myndu krefjast þess að fara í fótbolta eða körfubolta (eða eitthvað álíka sem ég sökka í) en nei: "Förum í blak" og flestir í hópnum "JÁÁÁÁÁ - gerum það gerum það gerum það!!!"
Þetta var eitthvað sem ég var mjöööög ánægð með því það er brjálað stuð í blaki. Þess ber einmitt að minnast að þegar ég var í 6. bekk í Verzló þá tókum við stelpurnar í 6-X okkur til og unnum blakmót kvenna!!! Massi massi!

Það kom reyndar á daginn að eftir að hafa ekki snert blakbolta í hátt í 4 ár þá er maður aðeins búinn að missa mjúku meistarhreyfingarnar!
Ég byrjaði á að klúðra uppgjöfinni sem er eitthvað sem ég var EKKI ánægð með! En þetta kom svona smátt og smátt og vissulega - mitt lið vann báða leikina!

Það var samt mjög fyndið - það var orkubolti í mínu liði sem lék alltaf allar stöðurnar á vellinum!
Maður kannski sá boltann koma - en svo sá maður líka gaurinn koma hlaupandi svo maður ákvað bara að bakka og leyfa honum - en nei, þá bakkar hann, boltinn lendir í gólfinu á milli okkar og maður fær "bíddu, af hverju tókstu hann ekki??"
En það var náttúrulega bara fyndið og skipti engu máli því við rústuðum þessu hvort sem er!!! (Gunna, ég veit þú ert ánægð með mig núna!!!)

Langaði bara að deila þessu með ykkur!

Stelpan