Í gær
Sjitt hvað það var gaman í gær!
Hjá mér byrjaði kvöldið á kræklingakvöldi útskrifaðra líffræðinga. Þar var líka svona hrottalega gaman!
Boðið var upp á villibráðarhlaðborð sem samanstóð af gæs, gæsapaté, gröfnum laxi, reyktum lunda, einhverskonar sushi hval, kræklingasúpu og hrefnusteik! Mmmmmm, nammi nammi namm!
Í eftirrétt var svo hin víðfræga haxabolla og fisherman's friend staup - jækz!
Svo tók við dans og mikil gleði langt frameftir og það var alveg hreint fáránlega gaman!!!
Nú, þegar langt var liðið á kvöldið/nóttina drifum við okkur niðrí bæ og héldum beina leið á Nasa þar sem Papaball var í fullum gangi! Þar hitti ég svo gengið mitt sem var kannski eins gott því ég týndi nánast öllum líffræðingum með det samme!
Þegar ballið kláraðist færðum við okkur svo yfir á Hressó (what else).
Á leiðinni þangað - einhversstaðar fyrir utan Mál og menningu - fann ég svo skó. Svartan, lítið notaðan karlmannsskó í stærð 45. Nú, við litum í kringum okkur og leituðum að eiganda en hann var hvergi að finna svo... við tókum skóinn með okkur!
Þessi skór er bara eitt það skemmtilegasta "dót" sem við höfum haft með okkur á djamminu í langan tíma! Orð fá því ekki lýst hvað við skemmtum okkur vel með skóinn!
Svo nú erum við að spá í að setja skóinn til sölu á ebay - for sale, one shoe, size 45. Setja svo jafnvel link á b2.is - "týndirðu skónum þínum um helgina - nú geturðu keypt hann til baka á ebay!"
Hehehe - við erum svo fyndin!!!
Allavega, við vorum svo á Hressó nánast þangað til það lokaði en þá drusluðum við okkur heim eftir eitt lang best heppnaða djamm í langan tíma!
Takk fyrir mig!
Stelpan

<< Home