Kvef
Já ef þetta er ekki bara alveg týpískt!
Ég er að fara út á morgun og ég er komin með þetta fínasta kvef!
Ekki nóg með það að mér er illt í hálsinum, er með brjálaða viskírödd, nefrennsli og sífelldan hnerra - nei áðan tók ég eftir því að ég heyri líka aðeins verr!
Var búin að vera heima að læra og taka til og fannst ég alltaf vera svona hálfpartinn með hellu. Svo fór ég í tíma uppí Læknagarð og rakst á Dagbjörtu vinkonu og það var mjög fyndið að tala við hana því það var alveg eins og það væri búið að lækka aðeins í henni - þetta var eins og hún væri í dálítilli fjarlægð!
Svo fór ég í tímann og ég heyrði nánast ekkert í gaurnum þar! Þetta er alveg glatað!
Ég verð bara að vona það að guðirnir blessi mig með því að lækna mig af þessu kvefi á næstu klukkustundum!
Stelpan

<< Home