Morð og afmæli
Já við vinahópurinn skelltum okkur út úr bænum um helgina.
Á laugardagskvöldinu var svo haldið murder-mystery sem í þetta skiptið gekk út á mafíuna árið 1920! Það þarf vart að taka það fram að 1920+mafía buðu upp á nokkra verulega góða búninga!
Sem dæmi var ég maddama (já þið skilduð það rétt = hórumamma) og vann ég meira að segja verðlaun fyrir besta búning! Ég verð samt að gefa Nínu Kristjáns smá heiður af þessum búning en hún einmitt greiddi mér og holy moses - mér brá í hvert skipti sem ég leit í spegil - hárið var svaaaaaðalegt (þið eigið eftir að sjá myndir)!!!
Hrefna fékk síðan Óskarinn (farandbikarinn fyrir besta leik) en hún var barónessan (mamma eins aðalmafíósans). Það má með sanni segja að barónessan hafi verið virkilega obnoxious manneskja - hún opnaði ekki munninn án þess að hrækja á einhvern og skella hurðum og ég veit ekki hvað og hvað! Ég persónulega var að verða alveg græn á garginu í henni í lok kvöldsins!!! En út á það einmitt gekk leikurinn og á Hrefna heiður skilið fyrir að nenna að standa í þessu endalausa tuði og gargi allt kvöldið!
Það besta var síðan morðið sjálft en Ingþór var semsagt myrtur - en engum tókst að giska á hver drap hann!!! Það var semsagt mín ástkæra systir sem myrti "pabba" sinn og komst upp með það!
Æ þetta var geðveikt gaman - enda ekki annað hægt!!
Nú, þá er komið að seinni helming fyrirsagnarinnar en það er einmitt afmælið!
Afmælisbarn dagsins í dag er semsagt hann Ingþór minn - en hann er *ritskoðað* ára í dag!
Til hamingju með daginn sæti!!!
Að því sögðu ætla ég að reyna að læra eitthvað - það virðist ekkert vera að saxast á það sem ég þarf að gera - það bætist bara við!!
*andvarp*
Stelpan

<< Home