Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, desember 21, 2005

Jólafrí!

Já ég er komin í jólafrí!
Það er reyndar komið svoldið síðan ég fór í jólafrí - ég hef bara verið of upptekin við að djamma, kaupa jólagjafir, pakka inn jólagjöfu, skrifa jólakort, baka smákökur og annað jafn skemmtilegt til að nenna að blogga!

En nú sá ég mér loksins ástæðu til að blogga!
Ég var að fá út úr þjálffræðiprófinu mínu (humpfr prófinu) og viti menn - ég fékk 9!!!
Það var lagið!!!
Mér sýnist reyndar að kennarinn hafi verið nokkuð gjafmildur en hæsta einkunn var 9 (og það voru 8 með hana), næsta einkunn var 8,5 (5 með hana) og svo var einn með 8!
Breytir ekki því að ég rúllaði þessu upp!!

Nú er bara að bíða og sjá hvernig lífeðlisfræðin fór hjá manni!!!

Stelpan