Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

laugardagur, janúar 21, 2006

Holdsveiki

Já ég fékk holdsveiki! Reyndar bara í stutta stund í gærkveldi en samt!

Þannig er mál með vexti að það var kveðjupartý hjá Agli í gær - hann er að flytja til DK í fyrramálið. Þema partýsins var glysrokk svo við máluðum okkur svakalega, greiddum okkur svakalega og klæddum okkur öll upp!
Svo komum við til Egils og þar var hann með eitthvað svaðalegt klessuglimmer sem mér þótti tilvalið að skella á kinnarnar.
Síðan fer ég á klósettið og kíki á glimmerið í speglinum og fannst það svona dáldið mikið svo ég ákvað aðeins að laga það.
Nei - það fór ekki betur en svo að ég endaði með að rífa af flygsu af glimmeri og farða - og ég var ekki með lítið af farða! Svo þarna stend ég - öll uppstríluð - fyrir utan einhverja tvo fersentimetra á kinnina þar sem skein í mína raunverulegu kinn - í allt öðrum lit!!!

Guð minn góður - þetta var skelfilegt - þeir sem hafa séð myndina Death becomes her ættu að vita nákvæmlega hvernig ég leit út - það vantaði bara stykki í fésið á mér!
Ég hélt ég myndi deyja þetta var svo skelfilegt - og ekki nokkur leið að laga það! Svo ég gerði bara það eina í stöðunni - tók klessuglimmerið og kíttaði í gatið!

Þetta var alveg hilarious - panic mómentið þegar ég sá gatið í fésinu á mér og í neyð minni leitaði að blessuðu glimmerinu!
Já, það má með sanni segja að mér hafi liðið dáldið eins og holdsveikisjúklingi á þeirri stundu!

Stelpan