Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, janúar 18, 2006

Snjóblogg

Já ég veit ég hef ekki verið dugleg að blogga - enda lítið búið að vera að gerast og ekki frá mörgu að segja!

Hins vegar skal ég segja ykkur þetta - ég er komin með nóg af þessum snjó!
Ég er ekki enn búin að festa bílinn - en nokkrum sinnum hefur það staðið tæpt!
Þar að auki hef ég eytt ófáum tímunum í að moka bílinn minn út á morgnana og skafa hann allan - bæði að utan og innan!

Ég hef líka hlustað á margan bílinn nánast bræða úr vélinni við að komast út úr stæði hérna á Laugarveginum og einum tókst meira að segja að sprengja eitthvað! Hann var búinn að vera í góðan hálftíma bókstaflega að drepa vélina - svo heyrðist eitthvað sem hljómaði eins og mjög hátt og hvellt snark - og eftir það heyrðist ekki meir!!!
Sucker!!!

Mig langar bara mest að vera heima hjá mér þangað til þessi ófærð hefur lagast!
Og það bjargar ekki neinu þótt sköfubílarnir keyri um allt og skafi snjóinn til - satt best að segja veit ég ekki hvort er verra - áður en þeir skafa þegar maður rennur til í lausa snjónum og spólar - eða eftir að þeir skafa þegar ekkert er eftir nema bónað svellið!

Ég gerði mér einmitt ferð upp í Baðhús áðan - fótgangandi að sjálfsögðu - og á leiðinni þangað þarf ég að fara upp sannkallaða brekku dauðans! Á þessum tímapunkti var ekki búið að skafa svo ég gekk 2 skref áfram og rann 3 skref aftur - ég bókstaflega spólaði í brekkunni! Enda var ég alveg búin á því loksins þegar ég komst upp - hefði getað sleppt því að fara í Baðhúsið!
Allavega, á leiðinni heim var sköfubíllinn búinn að koma og það skipti engu máli hvar ég reyndi að stíga og hvernig ég fótaði mig - ég bara rann viðstöðulaust niður brekkuna! Þótti það með eindæmum merkilegt að mér skyldi takast að standa ennþá í fæturna þegar ég kom niður!

En - það þýðir víst lítið að væla yfir svona smámunum þegar maður býr á Íslandi! Maður verður bara að suck it up og setja á sig mannbroddana!!

Stelpan