Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, janúar 04, 2006

Yfirlýsing

Ágætu skyldmenni, vinir og aðrir velunnarar!

Eins og flestir vita þá er ég að byrja á mastersverkefninu mínu núna hvað af hverju.

Það sem kannski ekki allir eru vissir á er að mastersverkefnið mitt er mjög keimlíkt verkefninu sem ég var að vinna í sumar - þó ekki sama verkefnið (og þeir sem lesa þessa síðu að staðaldri vita að sumarverkefnið gekk svona upp og ofan!)

Þegar þessir erfiðleikar í sumar voru að drepa mig var mikið af fólki sem bauð mér sína aðstoð - fólk sem ýmist var að þjálfa, þekkti þjálfara eða á einhvern hátt gat komið mér í samband við þjálfandi fólk!

Þar sem við vorum búin að fá leyfi hjá Vísindanefnd fyrir ákveðnum þjálfurum og því fólki sem þeir voru að þjálfa "mátti" ég ekki þiggja þessa góðu hjálp sem mér var boðin!

Núna er ég hins vegar að fara að vinna að mastersumsókninni til Vísindasiðanefndar og vantar einmitt þjálfara til að skrá!

Jæja - svo ég komi mér nú að efninu: Ef þið þekkið þjálfara sem hefur áhuga á að láta mjólkursýrumæla fólkið sitt - frítt - þá megið þið endilega hafa samband við mig!

Takk fyrir það!

Stelpan