Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, febrúar 20, 2006

Svindl og samsæri!

Hnuss!

Flestir sem mig þekkja ættu að vita að ég á flottasta síma í geiminum!

Ójá, það er sko engum blöðum um það að fletta að síminn minn er sá allra flottasti á markaðnum!
Þetta er síminn minn!!!
Heldur betur - bleikur Razr!!!

Ég sá hann á ebay og keypti hann þaðan núna í byrjun desember og hef verið hæstánægð með hann - enda ekki annað hægt!

Það var líka annað sem ég var svo ánægð með varðandi símann minn - hann var ekki seldur hérna heima - enda er hann limited edition!
Það átti enginn annar svona síma - hann var one of a kind!

Það fór því töluvert í taugarnar á mér þegar ég sá auglýst hjá símanum að þeir væru komnir með þessa bleiku útgáfu í hendur! Síminn minn er ekki lengur einstakur! Nú getur ótíndur almúginn farið útí búð og keypt samskonar síma eins og ekkert annað sé sjálfsagðara!!!

Já, ef þetta er ekki bæði svindl og samsæri - þá veit ég ekki hvað er það!!!

Stelpan