Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, mars 28, 2006

7 dagar!

Já það er rétt - það er ekki nema vika í Kúbu!!

Þið eruð kannski komin með leið á að heyra það en mér er alveg sama - ykkur er frjálst að lesa eða ekki lesa þetta blogg mitt!
Planið er að skutla nýju bloggi inn á hverjum degi þangað til ég fer út! Ekki það að ég hafi frá svo mörgu að segja allt í einu - nei ég er bara að monta mig! Og er ógeðslega spennt!!!

Annars er dagurinn í dag frekar góður dagur!
Í fyrsta skipti núna í hátt í mánuð verð ég búin kl. 18!
Ég er alveg búin að hlakka til þessa dags! Alla aðra daga er ég búin að vera að vinna eitthvað fram á kvöld - og helgarnar eru engin undantekning!!!
Svo - ætli ég geri ekki eitthvað uppbyggilegt - sitji heima og horfi á kassann eða álíka!

Indælt!

Stelpan