Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, mars 29, 2006

Bylting í íslensku sjónvarpi!

Já - það má með sanni segja að á mánudaginn næstkomandi verði bylting í íslensku sjónvarpi!
Byltingin sem um er rætt snýr að sjálfsögðu að hinni stórkostlegu sápuóperu - the Bold and the Beautiful!
Á mánudaginn ætlar stöð 2 að spóla tvö og hálft ár fram í tímann gerandi það að verkum að við verðum ekki lengur að horfa á þætti síðan 2002 heldur verður komið væntanlega eitthvað fram í 2004!!!

Ég er samt ekki enn búin að ákveða mig hvort ég er ánægð með þessa byltingu eða ekki!

Það er nefninlega svo mikið af góðu stöffi sem á eftir að gerast og við eigum eftir að missa af!
Og já - ég veit - þetta er nú bara sápuópera. En þess vegna horfi ég staðfastlega - vegna þess að þetta er aaaaaaalgjör sápa!! Ég er að segja ykkur það - sjónvarpsefni gerist ekki mikið betra en Bold! Þeir vita það sem horfa!

Mest er ég svekkt að missa af því sem er að fara að gerast akkúrat núna - ætli við missum ekki rétt af því! Þannig er mál með vexti að Brooke var að komast að því að hún er ólétt eftir tengdason sinn!!!
My god this is good stuff!!!
Og - svo er tiltölulega nýkomið í ljós að Eric er ekki raunverulegur pabbi Ridge heldur er það Massimo Marone!
Again - good stuff!!!

Ég væri alveg til í að sjá hvernig þetta allt saman fer - en ætli ég verði ekki að sætta mig við næstbesta kostinn - að fara á netið og lesa um hvað gerist!!!
Ég gæti meira að segja bara prentað það út og lesið það þar sem ég ligg í sólbaði á ströndinni á Kúbu!!!!!
Aaaaaaa - lífið!

Allavega - 6 dagar í Kúbu!!!!

Stelpan