Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

föstudagur, mars 24, 2006

Kúba

Ég veit ekki alveg hvernig - en mér hefur einhvernveginn tekist að gleyma að láta suma vita af því að ég er að fara til Kúbu á næstu dögum!
Er sá misskilningur leiðréttur hér með!

Ég er semsagt að fara til Kúbu 4. apríl!
Er farin að hlakka alveg fáránlega mikið til!

Í fyrsta lagi - það verður gott að komast í frí!
Það er búið að vera svo vangefið mikið að gera hjá mér síðustu vikur að ég hreinlega get ekki beðið eftir að komast frá því öllu saman!
Don't take me wrong - ég á ekkert erfitt með að vinna - en þegar það er allan daginn - alla daga - öll kvöld og allar helgar - þá fær maður fljótt leið!

Í öðru lagi - Kúba verður gjeeeeeeðveik!
Við verðum í Havana í 4 daga - að skoða okkur um og svona.
Síðan förum við á Varadero ströndina í 10 daga og verðum þar á 5 stjörnu hóteli þar sem allt er innifalið!!! Allur matur og allir innlendir drykkir!!!
Nice!
Aðeins til að rub it in - þá er hér yfirlitsmynd af hótelinu okkar!












Allavega - þessa stundina eru 11 dagar í Kúbu!
Vúúúúúúúhúúúúúúú!

Stelpan