Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

fimmtudagur, mars 16, 2006

Leiðin heim

Ok - I'll be the first one to admit - leiðin að heimilinu mínu er dáldið ... spes!

Fyrir þá sem ekki vita þá bý ég á Laugaveginum fyrir ofan Hlemm og inngangurinn snýr ekki að Laugarveginum sjálfum heldur inn í port bakatil.
Leiðin að þessu tiltekna porti er dáldið furðuleg - niður lítt þekkta götu - inn í minna þekkta, dead end götu - þar inn í smá sund við hliðina á hálfhrundum bílsskúr - og þá er maður kominn í malarportið fyrir utan hjá mér. Það sem umkringir þetta port úr flestum áttum eru svo hálfónýt og mannlaus hús.
Mjög aðlaðandi allt saman.

En þrátt fyrir allt er alveg merkilega mikil bílaumferð þarna - ég veit ekki hverjir það eru sem eiga alla þessa bíla eða hvar viðkomandi fólk á heima (þar sem mitt hús er það eina í röðinni þar sem inngangurinn snýr ekki að Laugaveginum) - en á kvöldin eru að jafnaði allt að 10 bílar í portinu.
Þetta er frekar stórt port - þar er easily hægt að koma fyrir einhverjum 15 bílum - jafnvel meira.

Þess vegna finnst mér svo undarlegt að fólk virðist bara halda að það sé komið út í örgustu sveit þegar það kemur inn í portið! Við skulum ekki gleyma því að þetta er bara rétt við Laugaveginn!

Til dæmis um daginn - ég sá það reyndar ekki en Nína systir var að fara út í bíl og þá var bíl lagt beint fyrir aftan hana í portinu. Í bílnum var par sem var greinilega komið til þess að parka bílnum og ... já. Þeim brá svo svakalega þegar hún kom að þau hættu leiknum skyndilega og drifu sig burt!
Ég veit ekki hvert þetta fólk hélt eiginlega að það væri komið - portið var fullt af bílum og íbúðahús beint á móti!

Svo í dag - ég hélt nú bara að ég yrði ekki eldri!
Ég var semsagt að fara í mat til mömmu og var alveg í seinni kantinum. Svo ég hleyp út í bíl og ætla að bruna heim til m&p en nei - þá var bíl lagt beint fyrir aftan mig svo það var ekki séns að ég kæmist út!
Frábært!
Ég byrja á að skoða möguleika mína og kemst að því að þeir eru engir! Svo ég fer út úr bílnum mínum og að hinum. Þetta var svartur Range Rover jeppi - eiginlega bara glænýr. Hann var ólæstur og í gangi!! Og enginn í bílnum eða nálægt honum!!!
Ég stóð þarna í smá stund - horfandi í kringum mig - bíðandi eftir að einhver kæmi og færði bílinn - en nei! Hvergi sást hreyfing.
Eftir smá stund ákvað ég svo bara að taka örlögin í mínar hendur svo ég settist inn í bílinn og færði hann sjálf!
Það hefði verið auðveldast fyrir mig í heiminum að bara setjast upp í bílinn og keyra burt!

Þetta finnst mér alveg slá öll met!
Það er eitt að skilja bílinn eftir ólæstan - annað að skilja hann eftir í gangi - og svo enn annað að skilja hann eftir ólæstan, í gangi, fyrir aftan bíla sem gætu þurft að komast út - og láta svo bara ekkert sjá sig í heillangan tíma!
Eigandinn var bara begging for að honum yrði rænt!
Aftur vil ég minna á að þetta allt saman gerðist rétt fyrir ofan Hlemm!
Og ég veit hvað þið eruð að hugsa og svarið er já - ógæfumenn sem halda til á Hlemmi eiga það til að villast inn í portið! Þetta hefði verið frábær fengur fyrir einn slíkan!

Svo - ef einhvern bráðvantar að redda sér bíl - á einn hátt eða annan - endilega skiljið eftir nafn og númer og ég skal hringja næst þegar bíl er "dömpað" í portið mitt!

Stelpan