Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, mars 27, 2006

Skróóóóóp

Mikið finnst mér það leiðinlegt þegar strákarnir taka upp á því að skrópa í mælingu til mín!

Sérstaklega fer það í taugarnar á mér þegar þeir láta mann ekkert vita - ég veit ekki - sumir virðast bara gera ráð fyrir því að ég fylgist með öllum þeirra leikjum og æfingum og viti þar af leiðandi ef þeir eru eitthvað meiddir eða eitthvað!

Svo er það alltaf jafn pirrandi þegar ég er búin að bíða og bíða - ákveð svo loks að hringja í viðkomandi og þá er hann með slökkt á símanum! Hljómar dáldið eins það sé planað!

En auðvitað eru þeir ekkert allir svona slæmir - flestir mæta bara á sínum tíma í mælingu og þeir sem ekki komast eru vissulega duglegir að láta vita!
Ég er bara búin að sitja núna í tvo og hálfan tíma að bíða því þeir voru tveir í röð sem skrópuðu!!!
Og að auki var einn í morgun sem afpantaði!

Er búin að nýta þennan tíma eins og mest er mögulegt - í úrvinnslu og svona. En ef þeir mæta ekkert í mælingu - þá eru náttúrulega engin gögn að vinna úr!!!

Þessa stundina er það að halda mér gangandi að ég er að fara til Kúbu eftir 8 daga!
8 DAGA GOTT FÓLK!
Það er ekki nema vika í þetta - á mánudaginn næsta verð ég bara að klára að redda síðustu hlutunum, pakka og gera mig klára því við leggjum í hann eldsnemma á þriðjudaginn!
Ekki leiðinilegt!


















Þetta verður sko ég eftir viku!!!

Stelpan