Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, mars 20, 2006

Yfirsofelsi

Scheise hvað ég svaf hrottalega yfir mig í morgun!

Sem betur fer átti ég ekki að byrja að mæla fyrr en kl. 13:00 en ég ætlaði að eyða morgninum í að stússast helling svo ég stillti klukkuna bara um 8.
Ég vakna svo af sjálfsdáðum - það getur bara þýtt eitt - ég drap á vekjaraklukkunni!
Ég lít á klukkuna og hún er rúmlega eitt!!!!

Shitt shitt shitt!

Ég trúði þessu ekki - leit á símann og jújú - rúmlega eitt!
Ég stökk á fætur - ekki að trúa því að mér hefði tekist að sofa svona hryllilega mikið yfir mig.
Fór inn í eldhús og leit á klukkuna þar til að vera aaaaalveg viss. Jebb - klukkan var vissulega orðin eitt!

Shitt shitt shitt!!!!

Svo ég rýk inn í herbergi - byrja að klæða mig í föt og gríp símann til að hringja í strákinn sem ætlaði að mæta klukkan eitt til mín - láta hann vita að mér myndi seinka aðeins.
Svo þar sem ég róta eftir símanúmerinu hans tek ég eftir því að það er allt hálf ... hljótt! Og það er frekar dimmt úti...

Great! Þar sem ég stend þarna - hálf klædd - með símann í hendinni - geri ég mér grein fyrir að klukkan er ekki orðin eitt as in 13:00 - nei, klukkan er bara 1:00!!!
Snillingur!

Svo - það var ekkert í stöðunni að gera annað en að halda áfram að sofa.
Það gekk reyndar hálf illa að sofna aftur því ég var svo upptjúnnuð öll - en það hafðist á endanum og svo vaknaði ég á réttum tíma við klukkuna í morgun!

Ruglið!

Stelpan