Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, apríl 26, 2006

Eftir Kúbu

Já ég veit það - ég er ömurleg!
Læt mig hverfa í tvær vikur og svo loksins þegar ég kem aftur þá nenni ég ekki einu sinni að blogga!
En svona er þetta víst bara stundum - deal with it!

Málið er bara að fara í tveggja vikna algjörlega áhyggjulaust frí gerir það að verkum að þegar maður kemur heim bíður manns bara tveggja vikna uppsöfnuð vinna!!!

Svo ég er búin að vera að ganga frá fullt af lausum endum - fara yfir skýrslur og skila þeim, vinna úr öllum mælingunum sem ég gerði áður en ég fór út og skila niðurstöðunum úr þeim - tala við nýtt fólk og mæla enn meira!

Síðan eyddi ég nú heilu kvöldi í það að sortera út fyrstu umferð af myndum frá Kúbu! Vá hvað við tókum vangefið mikið af myndum!
Ég tíndi út bara valdar myndir frá Nínu, Unni og M&P og henti út helling hjá mér - er samt með einhverjar 500 myndir eða eitthvað!!!

Og svo má nú ekki gleyma aðalatriðinu - litla dýrið hún Unnur Kristín var að fermast á sunnudaginn svo maður þurfti að finna gjöf og finna fermingaroutfit (sem var vægast sagt ekki auðvelt) auk þess sem það var heill dagur undirlagður í ferminguna!
Til hamingju Unnsa mín!

Ofan á allt þetta lagðist svo að litla trítlan mín (bíllinn minn) tók upp á því að vera dáin þegar ég snéri aftur frá Kúbu! Því var hins vegar reddað strax daginn eftir - en daginn eftir það snéri litla trítla aftur í gröfina svo hún fór á verkstæði!
Er búin að fá hana aftur - en hún er alveg á grafarbakkanum! Ég þakka fyrir í hvert skipti sem hún fer í gang - en það er í hvert einasta skipti sem ég þarf að stoppa bílinn!!! Ég er hér með orðinn meistari í að halda bílnum í gangi á nánast engum hraða!
Hún fer svo í alvöru viðgerð á miðvikudaginn í næstu viku - hlakka til að fá hana hressa til baka!!!

En - to sum up - ég mun fara í aðra umferð af myndum um leið og ég fæ tækifæri til! Vona að það verði bara á allra næstu dögum! Þá mun ég hendi þeim inn á netið ykkur til ánægju og yndisauka!

Stelpan