Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

sunnudagur, apríl 02, 2006

Ekki á morgun heldur hinn!!!

Scheise hvað það er farið að styttast!
Það er ekki nema rúmlega sólarhringur í það að maður þurfi að vakna og skella sér út á völl!!
Vúúúúhú!

Ég veit ég klikkaði á bogg-planinu í gær en það var bara vegna þess að það var svo mikið að gera og ég var ekkert við tölvu!
En í gærkvöldi, rétt fyrir kl. 20 kláraði ég síðustu mælinguna mína og komst í frííííííí!
*andvarp*
Þessi tilfinning er eins og að klára síðasta prófið - rosalegur léttir!

Allavega - í gærkvöldi var svo afmælið hennar Díu frænku.
Hún á afmæli í dag - 25 ára stúlkan!
Til hamingju!

En afmælið var alveg vangefið skemmtilegt!
Við hlógum svo fáránlega mikið - á tímabili varð ég bara að fá pásu því ég var bara búin í maganum og kinnunum! Við vorum svo svakalega fyndin og skemmtileg öll sömul að það bara náði ekki nokkurri átt!
Svo var það ekki að skemma fyrir að það var vel veitt af öllu - bæði mat og drykk!
Já, gærkvöldið var svo sannarlega gott kvöld!

En að mikilvægari hlutum - Kúúúúúúúúúúba!!!
Nú er ég bara að taka mig til og pakka - morgundagurinn fer að mestu eða öllu leyti í það að ganga frá síðustu hlutunum, kaupa gjaldeyri og pakka!!

Ohhh lífið getur verið svo ljúft!!!

Stelpan