Kúba no more!!
Jæja - þá er maður kominn heim frá Kúbu!
Kúba var gjeeeeeeeðveik!!!
Í stórum dráttum snérist ferðin um það að: liggja á ströndinni, drekka kokteila, liggja á sundlaugarbakkanum, drekka kokteila, busla í sjónum, drekka kokteila! Ú og já - éta á sig gat á hlaðborðinu!
Svo fórum við að sjálfsögðu í ýmsar skoðunarferðir, bæði um Havana og um landið sjálft.
Og sögurnar sem maður heyrði - þetta er einhvernveginn allt svo fjarrænt manni að maður skilur þetta eiginlega ekki sjálfur!
Hlutir eins og að ríkið á allt og rekur allt! Þá meina ég allt!
Ríkið á til dæmis hátt í 90% bíla á Kúbu. Eina leiðin til að eignast bíl sjálfur er að erfa hann - það er ekki hægt að kaupa sér bíl!
Að sama skapi er ekki hægt að kaupa sér húsnæði - ríkið á allt húsnæði - þú færð bara að vera í því. Ef þú vilt svo skipta - stækka við þig eða minnka - er eina leiðin að fara á einskonar skiptimarkað þar sem maður bara bíttar á húsnæði við einhvern annan!
Og hlutir eins og bátarnir - nú úir allt og grúir af alls konar gúmmilaði þarna rétt fyrir utan Kúbu en innfæddir geta ekki bara siglt út og veitt sér í matinn - innfæddir mega ekki eiga bát - ríkið á alla báta!
Og ávextir og annað sem er ræktað þarna. Jarðvegurinn er góður og þeir fá kannski fína uppskeru - en það er ekkert dreifingarkerfi svo enginn nýtur góðs af!
Fólkið fær skammtað matarmiðum og fatamiðum og þess háttar. Þá erum við að tala um einhverjar 2 buxur, 2 boli og 1 skó á ári!!! Gangi mér vel að lifa á því!!!
Jújú, við fundum einn súpermarkað sem var - vægast sagt - fátæklegur! Það voru heilu og hálfu rekkarnir af akkúrat engu! Svo kom kannski heill rekki þar sem var bara sama varan x 5000! Ég held að heildarúrvalið af öllu - drykkjum, kjöti, tómatsósum, ógeðsjógúrt, hreinsiefnum og bara öllu - hafi verið að hámarki svona 50 vörutegundir! Þetta voru allt sömu vörurnar!!! Og ekki nóg með það - það má sko alls ekki hver sem er versla þarna! Ónei - þetta var sko bara fyrir túrista og yfirstéttarfólk! Það var ein innlend á undan okkur í röðinni og það þurfti að skrifa heila skýrslu og framvísa vegabréfi og meiriháttar skriffinnska fyrir að fá að versla þarna!
Spes!
Svo á hótelinu okkar var allur matur og allir innlendir drykkir fríir - það þarf vonandi ekki að taka það fram að við drukkum og átum fyrir allan peninginn!! Það var sko enginn afgangur af því!!!
Síðan tóku mamma og pabbi upp á því að fá sér Malibu einn daginn. Malibu er semsagt ekki innlendur drykkur og því var rukkað fyrir hann - no big deal! En skriffinnskan sem fylgdi því! Það þurfti að skrifa heila skýrslu um það hvað þau keyptu, hvaðan þau komu og ég veit ekki hvað og hvað - fylla út eitthvað svaka form - til að kaupa sér einn einfaldan á barnum!!!
Þetta er greinilega mikið skriffinnsku-ríki því hvert sem maður fór og hvað sem maður keypti var það alltaf skrifað mjög samviskusamlega niður í bók - eflaust Kastró til yfirlestrar!!!
En manni fannst það samt merkilegt - miðað við það hvað okkur finnst þetta fólk vera fátækt og eiga eitthvað hálf bágt - þá voru allir svo glaðir og hamingjusamir! Þetta fólk - sem þekkir ekki annað - er svo miklu nægjusamara en við græðgispúkarnir frá Íslandi! Maður einhvernveginn vorkenndi engum að vera svona fátækur - það voru allir sáttir með sitt - þau þekkja ekkert annað!
En - það voru ein smávægileg vonbrigði við Kúbu verð ég að segja!!! Ég kom þarna út - reiðubúin að skoða alls konar pöddur, froska, eðlur, fugla og alls konar og alls konar - en það var nánast ekkert!!!
Einu fuglarnir voru hrægammar, pelíkanar og nokkrar svölur! Jú og svo hellingur af litlum sætum finkum og öðrum smáfuglum - en ekkert breathtaking!!!
Við sáum nokkrar eðlur - en engar stórar og geðveikar! Einn froskur - sem var kraminn!
Og skordýrin!! Ég held að fyrir utan helv....... moskítóið og nokkrar drekaflugur hafi ekki verið neitt að sjá - ekki neitt!!! Ég leitaði og leitaði - inn í borg og upp til sveita - við vatn og við skóg - það var ekkert að sjá!!! Ég spurðist meira að segja fyrir um pöddur og fararstjórarnir bara höfðu ekki einu sinni spáð í því!!! Can you believe it!
En ég meina - maður getur ekki fengið allt! Þótt ég hefði vissulega viljað bítta út nokkrum moskítóum fyrir falleg fiðrildi eða einhver framandi skordýr!!!
So - to sum up - þessi ferð var hreint út sagt mögnuð og ég er hrædd um að þið eigið eftir að heyra oftar en einu sinn og oftar en tvisvar "þegar ég var á Kúbu..."
Stelpan

<< Home