Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, apríl 03, 2006

Á morgun!!!

Ég trúi því varla að ég sé að segja þetta en - ég er að fara til Kúbu í fyrramálið!!!

Ég er búin að pakka, kaupa gjaldeyri og ganga frá öllu sem þurfti að stússa - nú þarf ég bara að pússa á mér neglurnar og þá er ég reiðubúin!

Svo ætla ég að láta ykkur vita af því að ég ætla ekki að taka símann með mér út.
Ástæðan fyrir því er aðallega sú að það að taka með sér GSM síma til Kúbu hefur í för með sér stóran og feitan símreikning.
Einnig hef ég komist að þeirri niðurstöðu að ég er í rauninni ekkert svo mikilvæg! Það er ekkert svo aðkallandi að það megi ekki bíða í 2 vikur! Ég geri mér fulla grein fyrir því að það er ekkert sem mögulega gæti komið upp á sem ég ein - staðsett á Kúbu - gæti bjargað!!
Svo - ef það er í alvörunni eitthvað - þá verðið þið bara að senda mér email á halldob@hi.is - svo einfalt er það!

Ég hugsa að ég komist í tölvu einhverntímann þarna úti - annars er planið að vera í algjörri afslöppun og fríi!

En allavega - ég er farin til Kúbu - lifið heil á meðan - sjáumst brún og sæt eftir 2 vikur!!!!!



















Úúúúú jeeeeeeeee!!!

Stelpan