2:0
Já - staðan gegn skordýrunum er orðin 2:0 - mér í hag!
Kom heim áðan og þá var þessi stóri stóri geitungur eitthvað að trítla frammi á gangi!
Ég var ekki sein á mér að ná í plastglas og skutla yfir hann.
Ég er nú reyndar ekki búin að farga honum þar sem ég var í miklum flýti - en ég held það þurfi vart að taka það fram að þessi geitungur mun ekki angra nokkurn mann aftur!!!
Það er ekki nema hálfmaí og ég er strax búin að taka 2 kvikindi heima (og 2 upp í Skógarhlíð ef út í það er farið)! Ég sé fram á mikla veiði í sumar með þessu áframhaldi!!
Skyldi maður þurfa veiðileyfi ef maður fer yfir ákveðinn fjölda?!
Stelpan

<< Home