As good as new!
Já góðir lesendur - það gleður mig meira en orð fá lýst að segja ykkur frá því að bíllinn minn er loksins - loksins - kominn í lag!
Ég ætla ekki að drepa ykkur úr leiðindum með því að útskýra hvað var að honum - en það lýsti sér þannig að hann var að keyra á einhverjum 100 snúningum í stað 1100 snúninga (eða svo). Þar af leiðandi var hann alltaf - alltaf - að drepa á sér!
Þegar maður skipti úr bakk yfir í 1. gír þá drap hann á sér.
Þegar maður þurfti að stoppa á rauðu ljósi þá drap hann á sér.
Ef maður þurftir að stoppa með minni fyrirvara en 50 m þá drap hann á sér.
Þegar maður var að keyra - t.d. Miklubrautina - skipti um gír og hann drap á sér!
Ég get alveg fullvissað ykkur um það að síðustu daga og vikur hef ég verið mest óþolandi ökumaðurinn á götunum!
En - ekki lengur! Nú er litla trítlan mín orðin nánast fullkomin aftur!
Í því tilefni dreif ég mig með hana í smurningu og svo við næsta tækifæri ætla ég að þvo hana því hún á það svo sannarlega skilið!!!
Stelpan

<< Home