Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, maí 16, 2006

Draugagangur

Ég vaknaði í nótt við þennan líka brjálaða skarkala.

Nína systir var frammi í stofu að tala við einhvern og það voru eitthvað svo mikil læti og vesen að ég hrekk upp af værum svefni, ligg í smá stund og pirra mig á látunum, fer svo fram og bið hana að þegja!

Svo - þar sem ég stend í dyrunum - þá átta ég mig á því að Nína er bara alls ekkert heima - hún er stödd á Arnarstapa úti á Snæfellsnesi!! Og þessi hávaði sem vakti mig var bara ekki lengur til staðar!

Til að taka af allan vafa þá fór ég hratt einn hring um íbúðina - en var svo ekki lengi að loka á eftir mér inn í herbergi og leggjast undir sæng!
Guð hvað ég var hrædd því það var alveg hávaði - og þetta var greinilega Nína! Svo þegar ég fer fram þá skyndilega þagnar allt!!!

Creepy!!!

Svo ákvað ég - bara til að vera viss - að hringja í Nínu í morgun og gá hvort hún væri ekki örugglega enn á lífi - hvort hún væri nokkuð dáin og farin að ganga aftur í íbúðinni! En nei, hún var nú sem betur fer enn á lífi og að elda ofan í liðið á Arnarstapanum!

Ég hugsa að ég fari að sofa með ljósið kveikt í kvöld!!!

Stelpan