Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, maí 08, 2006

Hálsbólga

Já - haldiði að ég sé ekki komin með þessa fínu vorhálsbólgu!

Þetta byrjaði nú bara rólega - smá aumur háls og á morgnana og fram undir hádegi var ég rám eins og skrímsli úr hryllingsmynd! En svosem ekkert sem truflaði mig þannig séð.

Nei nei - ég vakna í gær - alveg búin á því í röddinni! Ég reyndi að tala en uppskar ekkert nema falsettu! En þó það - ég gat talað þrátt fyrir að ég hljómaði hallærislega og væri að drepast.

Nú - svo vakna ég aftur í morgun og þá er bara eins og það hafi einhver komið í nótt og skorið úr mér raddböndin! Það er sama hvað ég reyni - það kemur ekkert út úr mér nema hvísl - í besta falli!

Maður ó maður!

Þetta kemur sér einstaklega illa með tilliti til þess að ég er að fara að mæla helling helling af fólki í dag og á morgun (og fram eftir vikunni ef út í það er farið) og þetta er allt fólk sem er að koma í fyrsta skipti til mín.
Það þýðir að ég þarf að útsýra vel hvað við ætlum að gera, hvernig við gerum það og af hverju!
Svo þarf ég líka aðeins að tala við fólkið á meðan það er á brettinu - og bara til að það sé alveg á hreinu þá er þetta ábyggilega hávaðasamasta hlaupabretti made by man!

Svo var ég hálfpartinn að vona að Tóti (leiðbeinandinn minn) yrði á svæðinu - þá gæti ég kannski platað hann til að vera með mér og vera túlkurinn minn - en nei - hann er einhversstaðar víðs fjarri!
Ég get ekki gert mér í hugarlund hvernig þetta á eftir að enda - en það kemur í ljós eftir ca 10 mín!!!

Wish me luck!

Stelpan