Mæja býfluga
Ég fór út í morgun - var að mæla aðeins þótt það væri 1. maí.
Allavega.
Svo kem ég heim, fer úr skónum, kveiki ljósið og eitthvað og það er eitthvað furðulegt hljóð í íbúðinni. Það minnti einhvernveginn á lágt urr eða bíl í gangi eða þvottavélina eða eitthvað - nema bara ekki eins hávært.
Svo ég tek hring um íbúðina - inn á bað og ekki var það þvottavélin - inn í stofu og hvorki var það sjónvarpið eða tölvan. Síðan opna ég inn til Nínu og þá magnast hljóðið alveg fimmfalt.
Nema hvað - þá var Mæja býfluga mætt í heimsókn!
Og engin smá fluga maður! Enda var hljóðið frá henni þar sem hún var að urlast í glugganum - það var eiginlega ekki flugnasuð - þetta var miklu þyngra og dýpra hljóð - bara eins og hún væri að urra á mig!
Nú er ég manneskja sem hef mikinn áhuga á skordýrum - fékk meira að segja 9,5 í skordýrakúrsinum sem ég tók! Málið er bara að mér finnst skordýr alveg æðislega fascinating - svo lengi sem þau eru dauð og negld niður með títuprjóni!
Þrátt fyrir að ég viti margt um þessi kvikindi og þyki þau mjög áhugaverð - þá breytir það ekki því að þegar rihihisastór hunangsfluga stefnir urrandi á mig - þá kemur nett pempíuöskur og ég er stokkin!
En - ég er nú samt ekki algjör auli - svo eftir minniháttar eltingarleik tókst mér að veiða hana í plastglast! Og ekki nóg með það - ég veiddi hana í plastglasið - hún var vægast sagt ekki ánægð með það - svo setti ég glasið á borðið og ætlaði að leyfa henni að róa sig en nei - ég þurfti að setja alvöru glas ofan á plastglasið því annars hefði hún bara tekið af stað með það!!! Sönnun á því hversu huge hún er í raun og veru!!
Annars er ég nett smeyk við það að það sé bú hérna rétt hjá - á þakinu bara eða eitthvað!
Þetta er í þriðja skipti á 2 dögum sem ég sé svona risastóra flugu bara hérna við húsið okkar!
Ég er ekki alveg nógu sátt við það ef maður getur ekki opnað glugga án þess að fá heimsókn!
En jæja - nú er víst ekkert annað að gera en að fara með hana greyið og skutla henni í frystinn!
Það er ekki séns að ég hleypi henni aftur út- ég nenni sko ekki að veiða hana þessa oftar en einu sinni!
Sorry!!
Stelpan

<< Home