Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

sunnudagur, maí 14, 2006

Staðfesting á svalleika!

Ég fór í Bónus Holtagörðum á föstudaginn.
Náttúrulega ótrúlega svöl með bleika hárið mitt og stóru sólgleraugun mín.

Lagði bílnum og er að labba yfir bílastæðið þegar það mætir mér ca 10 ára stelpa. Hún stoppar fyrir framan mig og segir:
"Má ég taka mynd af þér?!"

"...uuu...jájá...ef þú vilt!"

Hún tók upp símann sinn og tók mynd af mér - "takk" - og hljóp í burtu!

Talandi um self-esteem booster dauðans og svo sannarlega staðfestinu á því hversu brjálæðislega svöl ég er!!!

Stelpan