Update
Jæja - ýmislegt hefur drifið á daga mína síðan síðast þegar ég nennti að blogga!
Til dæmis tók ég mig loksins - loksins - til og þreif bílinn minn!
Skrúbbaði hann í bak og fyrir - ryksugaði og þurrkaði af öllu innvolsinu! Fannst ég mjög dugleg og eiga mikið hrós skilið!
Daginn eftir þegar ég fór út í bíl varð ég ekki sátt því einhver fuglsskratti hafði séð sig knúinn til að kúka á húddið á nýþrifna bílnum mínum!!!
Ég er lúmskt að vona að rigning næstu daga eigi eftir að þrífa það af en ef ekki þá held ég að ég neyðist til að taka aðra umferð í þrifum - þetta er náttúrulega óþolandi!
Svo er ég búin að vera að horfa á Prison Break!
Boy ó boy! Þar sem ég er ekki með stöð 2 hef ég ekki horft á það þar heldur bara downloadað því og er búin að vera að taka nánast bara maraþonið á þetta! Er núna komin að lokaþættinum og guð hvað þetta er spennandi! Er alveg að halda í mér - spara síðasta þáttinn fyrir kvöldið!!!
Nú - svo er ég bara búin að vera ýkt dugleg að vinna svo ég geti farið áhyggjulaus til Köben í næstu viku!!!
Ójá - ég er sko að fara til Köben - ætla að vera þar í rétt rúma viku - versla, drekka bjór, versla, vonandi horfa framan í sólina, nú og versla!!!
Lovely!
Annars kemst lítið að í huganum á mér akkúrat núna annað en þessi dauðans hausverkur sem ég er búin að vera með í allan dag! Hann er svona að svífa á mig sterkar og sterkar eftir því sem á líður! Annars held ég nú frekar að það sé hausverkjapillan sem ég tók í morgun sem er smátt og smátt að svífa af mér!!
Já - það geta því miður ekki allar fréttirnar verið af hinu góða!!!
En allavega - ætla að fara og dópa mig upp aftur fyrir kvöldið!
Stelpan

<< Home