Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

fimmtudagur, júní 15, 2006

Done it all!

Já gott fólk - nú líður að því að ég fari að koma heim úr Danaveldinu og þegar á heildina litið er ég búin að taka allan túrastapakkann á þetta - og gott betur!

Tívolí - check!
Kíkti á tívolíið á föstudaginn - Sugarbabes að spila og allt! Fór reyndar ekki í morðtækið sem krakkarnir fóru í heldur horfði á í hæfilegri fjarlægð!!

Strikið - check!
Er búin að fara nokkrar ferðir niður í bæ og kíkja í þónokkrar búðir!

Nyhavn - check!
Höfum farið nokkrum sinnum og sest niður þar - fengið okkur eitthvað kalt og gott og horft á sólina!

Bjór - check!
Er búin að drekka marga marga bjóra - vissulega voru flestir þeirra fluttir inn frá Þýskalandi en engu að síður...

Pylsa - check!
Já - búin að fá mér eina danska pylsu - ekki eins gott og bæjarins bestu en samt mjög góð!

Litla hafmeyjan - check!
Við Clara fórum göngutúr áðan og kíktum á den lille havfrue. Clara tók meira að segja mynd af mér hjá henni og allt!

Höllin - check!
Í sama göngutúr kíktum við á konungshöllina og já - ég tók mynd af lífverði!

Hjólreiðatúr - check!
Við Clara fórum í gær í hörkuhjólreiðatúr! Því miður var hjólið sem ég var á nokkrum númerum of stórt fyrir mig svo ég náði ekki einu sinni niður! Þurfti meira að segja að standa alveg uppi á tánum á pedölunum og lyfta rassinum upp til að ná upp á hnakkinn! Því miður tók þetta allt sinn toll svo núna er verulega sársaukafullt að sitja - afturendinn fékk alveg að finna fyrir því!!!

Í kvöld erum við Clara svo að fara á ástralskan stað þar sem maður getur fengið kengúru, krókódíl og alls konar! Stefni á að fá mér kengúruna!
Svo erum við auðvitað búnar að kíkja aðeins út á lífið - ætlum að kíkja svo aftur út í kvöld!

Já - svo í labbitúrnum í dag löbbuðum við framhjá hafmeyjunni og höllinni og komum svo við í dómkirkjunni - alveg rosalega flott mannvirki. Áður en maður labbaði inn héngu uppi miðar og merkingar um að þetta væri guðshús og að þar ætti að ríkja þögn, bannað að tala, ekki vera með nein hljóð - uss uss uss!!! Svo við Clara læðumst inn eins og allir aðrir - skoðum kirkjuna sem var hreint mögnuð - mjög hljóðlega - skoðuðum og tókum myndir. Þegar við vorum búnar að vera þar nógu lengi og vorum að fara að labba út þá fer að bergmála um alla kirkjuna Bold and the beautiful símhringingin mín!!!
Fokk fokk fokk!!!
Þá var bara tvennt í stöðunni - annaðhvort grafa ofan í tösku, finna símann og þagga niður í honum - eða hlaupa!
Ég kaus seinni kostinn og hljóp út - á meðan ég gróf ofan í tösku eftir símanum!!!
Je minn eini - ég hélt ég myndi deyja!!! Fólk stóð og horfði og flissaði! Og þótt þetta væru ekki nema nokkrar sekúndur þá virkaði þetta eins og heil mannsævi! Ég upplifði þetta alveg í slow-motion!!
Við Clara vorum sko ekki lengi að flýja og koma okkur í hvarf!!!

Já það er sko allt að gerast hér í Danmörkinni!
En allavega - ég kem heim á klakann á morgun! Úr sólbaðinu og hitabylgjunni hérna heim í rigninguna og kuldann!!!
Ekki aaaaaalveg nógu sátt við það!!!

Stelpan