Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, júlí 12, 2006

Beautiful people

Já - ég geri mér grein fyrir því að ég er ekki búin að skrifa neitt hér inn í langan tíma - köllum það bara sumarfrí!

Það sem fær mig til að snúa aftur að tölvunni er hinn magnaði sjónvarpsþáttur Beautiful People.
Nú er þetta þáttur sem ég horfi bara alls ekki á - engan veginn! Ég veit að ég er stelpa og ég horfi á svona væmna stelpuþætti en time out segi ég nú bara - þessir þættir eru too much!

Svo sest ég niður áðan og ætla að horfa á hið magnaða tvíeyki - Beverly Hills og Melrose Place.
En þegar Beverly Hills er búið þá einhverra hluta vegna byrjar ekki Melrose Place heldur umræddur þáttur - Beautiful People.
Mín ekki alveg að fíla það!
Nú get ég ekki útskýrt af hverju en ég horfði á þennan þátt með öðru auganu á meðan ég naglalakkaði mig. Og til að taka það fram - fyrsti þátturinn í þessari seríu sem ég sé.

Nú - eins og þeir sem sjá auglýsingarnar vita þá er mamman í þáttunum sama pía og leikur Jo í Melrose Place. Hún er reyndar ekki eina pían úr Melrose Place sem er í sjónvarpinu þessa dagana - flest þeirra eru að leika í einhverju.
Svo er dinglað - í þættinum - og hver skyldi það vera?! Jú, haldiði að þetta hafi ekki verið gaurinn sem leikur Jake í Melrose Place! Og ekki nóg með það - í ljós kemur að hann leikur barnsfaðir mömmunnar! Og þau fara eitthvað að rífast um forræði!

Ég fékk bara deja vu!!!
Var ég ekki að horfa á þau tvö rífast í Melrose Place bara í gær eða eitthvað!!!
Mjög spes allt saman! Á undarlegan hátt væri hægt að snúa þáttunum þannig að þeir væru framhald af Melrose Place!
Fríkí!

Og svona í framhaldi af leikurum sem maður horfði á fyrir nokkrum árum.
Ég ákvað að horfa á fyrsta þáttinn af Love Monkey í gær og vá - ég fattaði það ekki fyrr en Íris hringdi í mig að Brandon úr Beverly Hills lék eitt af aðalhlutverkunum!!!
Gaurinn er svo ógeðslega eitthvað lifaður og feitur og sjúskaður og bla!!!
Alls ekki sexý!!!

Annars er ég ekki búin að gera upp hug minn um það hvort ég fíli Love Monkey eða ekki - þarf að horfa á allavega einn þátt í viðbót áður en ég get ákveðið það!

Stelpan