Innbrotsþjófur?
Fyrir þá sem ekki vita það þá er sumarvinnan mín bara það sama og ég var að stússast í vetur - vinna að mastersverkefninu mínu. Þessi vinna fer flest öll fram í húsinu þar sem sjúkraþjálfun háskólans er með aðsetur. Ég er semsagt búin að vera einskonar húsdýr þar í rúmlega ár - er með minn lykil og hleypi sjálfri mér inn hvenær sem mér hentar - þótt svo það sé kannski enginn annar á svæðinu.
Allavega...
Ég kem niðureftir í hádeginu áðan - sé á bílastæðinu að það er enginn í húsinu (sem kom í sjálfu sér ekkert á óvart þar sem sumarfrí eru í algleymingi þessa dagana). Opna dyrnar og æði inn - eins og ég hef gert daglega síðastliðið árið.
Nei - ég er varla komin inn þá heyri ég einhverja niðurtalningu - og að henni lokinni fer að pípa!!!
Fokk fokk fokk!!!
Svo ég snýst í hringi að reyna að átta mig á því hvaðan hávaðinn kemur og er ekki búin að finna græjuna þegar þessi massífi hávaði hefst svo ég geri það eina í stöðunni - flý út!
Great!
Ég byrja á að hringja í Tóta (en hann er, eins og svo margir aðrir, í sumarfríi) - hann kannast ekki við neitt kerfi! Næsta símtal var svo í Öryggismiðstöðina og þar tala ég við einhvern gaur sem tekur niður nafnið mitt og eitthvað og segir að það sé öryggisvörður bara á leiðinni!
Svo ég bíð... og bíð... og bíð aðeins lengur því let's face it - hvað átti ég annað að gera!
Hátt í 20 mínútum eftir að ég tala við Öryggismiðstöðina kemur vörðurinn! Maður fann svona hálfpartinn fyrir fölsku öryggi því ef ég væri í rauninni innbrotsþjófur þá hefði ég löngu verið farin með allt góssið!!
En gaurinn var nú bara elskulegur - þeir vissu alveg að kerfið var sett upp á föstudaginn svo það var alveg von á einhverjum aulum eins og mér! Hann var líka hálf kindarlegur þegar hann fór að spurja mig að nafni og kennitölu - en tók samt ekki sénsinn á öðru!
Þá kemur líka í ljós að það var húsvörðurinn sem bað um það á föstudaginn að það yrði sett upp kerfi og þeir bara komu samdægurs! Hann sagðist líka hafa sent e-mail á einhverja kennara en eins og ég segi - allir í sumarfríi - svo það var enginn búinn að kíkja á póstinn sinn!
Svo er ég náttúrulega ekkert eini nemandinn sem er að vinna hérna í sumar svo það eiga ábyggilega eftir að vera fleiri skemmtilegar uppákomur hjá þeim!!
Segið svo að það gerist aldrei neitt spennandi!!!
Stelpan

<< Home