Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

föstudagur, júlí 28, 2006

Lax, lax, lax og aftur laaaaaax!

Já gott fólk - ég fór í lax!

Ég geri mér grein fyrir að þegar fólk lítur á mig þá er það ekki það fyrsta sem fólk sér - laxveiðimaður - enda hef ég aldrei farið í laxveiði áður! En, það sem fólk ekki veit er að foreldrar mínir (þó aðallega pabbi) eru forfallnir veiðimenn og var ég sjálf ansi liðtæk í silungaveiðinni hér á árum áður - þó það sé nú komið svoldið síðan! Svo - ég veigra mér sko ekki við að klæða mig upp í klofstígvél og setja á mig poloroid sólgleraugu og vaða út í á með stöngina - enda er það akkúrat það sem ég gerði!!!

Allavega - í þetta skiptið ákvað ég að fara með pabba og mömmu í laxveiði og reyna fyrir mér að ná í maríulaxinn!
Veiðin fór fram í Búðardalsá en þar var fiskurinn að ganga like crazy!
Og viti menn - eftir einhverja 2 tíma af veiði er bitið á og skrímslinu landað!!! Maríulaxinn mættur á svæðið - takk fyrir takk!!
6 pund og 64 cm!!!
Újé - mjög sátt við það!!!
Og samkvæmt hefð var ég látin bíta veiðiuggann af - átti nú ekki von á því að það yrði eitthvað sérstaklega girnilegt! En viti menn - ugginn kom bara nokkuð auðveldlega af og það var ekki nokkurt óbragð af!!!

Síðan var veiði haldið áfram allan daginn og lítið gerist!
Fiskurinn var þarna - í torfum!!! Við erum ekki að tala um fisk í tugatali - við erum að tala um fisk í hundraðatali!!! Maður upplifði sig svoldið eins og í Stellu í orlofi með allan þennan lax!
Og það var kastað og kastað og kastað!!! Og agnið rann á milli fiskanna og rakst í suma þeirra - en þeir bara þefuðu af því og færðu sig svo frá!!!!
Arrrg!
Það var meira en lítið svekkjandi!!!
Orð fá því ekki lýst hversu mikið var reynt að fá fiskinn til að bíta á - en það gekk bara alls ekki nógu vel!!
Í lok ferðar fórum við familían heim með 4 laxa - ég fékk einn, Elfa frænka einn og pabbi tók tvo! Hins vegar tókst Elfu, mömmu og Unni saman að "sleppa" 5 löxum! Ég var bara fegnust því að vera ekki í þeim pakkanum!!!

Svo - at the end of the day var þetta bara hin fínasta laxveiði - ég fékk allavega einn og það var fyrir öllu!!!

Stelpan