Veðurfræðingar ljúúúúúúúga...
Já - nú verð ég bara að fara að taka undir með Bogomil!!!
Hingað til er ég búin að reyna að vera þessi bjartsýna týpa - "nei, krakkar, látið ekki svona - það er allur júlí og ágúst eftir - nægur tími fyrir gott veður!!!"
Og - spá mín virtist vera að fara að rætast þegar spáð var bongóblíðu, 19° hita og ég veit ekki hvað og hvað í þessari viku!!!
Ég var spennt mjög - var orðin klár með grillið og sumarpilsið og ég var meira að segja búin að haga því þannig að ef það kæmi mega-sólbaðsveður þá gæti ég með lítilli fyrirhöfn tekið mér frí!!!
En nei - ég kíki inn á mbl.is áðan (en það er veðurspáin sem ég fylgist alla jafna með) og viti menn - það er búið að breyta spánni - og bara til hins verra!!!
Nú er hæst 14° á næstunni og fyrir alla dagana er búið að bætast við allavega eitt stig af skýjum!!!
Hnuss segi ég nú bara!!!
Nú er ég formlega gengin í lið með þeim svartsýnu!!! 2006 verður hér eftir minnst sem ársins þar sem var ekki sumar!!!
Stelpan

<< Home