Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, ágúst 21, 2006

Annar í afmæli!

Jæja - nú fer hátíðarhöldum fylgjandi afmæli mínu að ljúka! Fólk er að verða búið að jafna sig eftir maraþonið og það er nokkurn veginn runnið af unglingunum sem voru niðrí bæ á fylleríi!

Ég verð að segja að hápunktur afmælisdagsins hafi án nokkurs efa verið sú stórfenglega flugeldasýning sem haldin var í tilefni dagsins! Hún var - eðli málsins samkvæmt - haldin rétt hjá heimili mínu svo maður þurfti ekki nema rétt bregða sér út fyrir hús til að komast á stúkusvæði sýningarinnar!
Hafi nokkur maður verið í efa um hvort sýningin væri ætluð mér eða ekki þá var þaggað niður í þeim röddum fljótt og örugglega þegar bleiki partur sýningarinnar hófst - þá komu einhverjir tugir bleikra flugelda í röð og tóku fyrir allan vafa um það fyrir hvern sýningin væri!
Takk fyrir það!

Síðan - svona aðeins til að sanna mál mitt - heyrði ég einhvern orðróm um það að á næsta ári ætti að halda önnur eins hátíðarhöld - nema í þetta skipti á sunnudeginum!
Nema hvað - haldiði að afmælið mitt verði ekki á sunnudeginum á næsta ári!!!

Tilviljun?! - I think not!

Stelpan