Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, september 12, 2006

Geitungur í vanskilum

Margir eru búnir að spyrja mig að því hver staðan væri á geitungnum inni á baðherbergi hjá mér.
Staðan er sú að hann er enn týndur!

Á þessu stigi málsins er ég nánast fullviss um að hann er dauður.
Hvar hann er dauður er svo allt annað mál!

Ég fékk þónokkrar ábendingar um hvert hann gæti hafa farið.
Loftræsting sagði einhver - en þar er net fyrir.
Niðurfall - í vaski eða baði - finnst það frekar ótrúlegt. Ég hefði séð hann fara ofan í vaskinn og með baðið - þar kemur tvennt til greina: Annaðhvort skreið hann lifandi niður í niðurfallið - einstaklega ótrúlegt þar sem geitungar eru svona minna í því að sulla í vatni. Hitt sem kemur til greina er að hann hafi dái og akkúrat dottið ofan í niðurfallið! Já einmitt - full mikil tilviljun fyrir mig!!!
Aðrar trúlegar tilgátur um flóttaleiðir hafa svosem ekki komið!

Svo - ég er farin að fara óhrædd á klósettið - passa samt upp á að Baninn sé innan handar á vaskinum.
Síðan tók ég mig til í gær og setti á brennandi heitt í sturtunni og spúlaði vel alla sjampóbrúsa og dótarí þar sem hann gæti falið sig! Og já - ég bunaði vel ofan í niðurfallið ef svo ólíklega vildi til að önnur tilgátanna að ofan væri rétt!

Ég tók mig meira að segja til og leitaði inni í lokuðum skápum, þvottavélinni og óhreinatauskörfunni en - ekkert!

Fyrir mér er þetta hreint ótrúleg ráðgáta
Ef þetta er ekki mál fyrir Gil Grissom þá veit ég ekki hvað er það!!!

Stelpan