Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, september 11, 2006

Hetja óskast!

Ég kom heim í hádeginu og mín beið glaðningur - geitungur í eldhúsinu!!!
Frábært!
Nú er ég nánast fullviss um að það er geitungabú í garðinum við hliðina á því þetta er þriðji geitungurinn sem kemur inn núna á 4 dögum!

Allavega - þessi geitungur var pirraður - veeeerulega pirraður svo það var ekki nokkur leið að nálgast hann!
Þar sem ég stend - í hæfilegri fjarlægð - og hugsa um möguleika mína flýgur hann í óðagoti inn á bað svo ég loka hurðinni og anda aðeins léttar.
Því næst fór ég og náði í Bana 1 - flugnaeitur og glas! Með það að vopni opna ég inn á bað og þar er gaurinn að sveima í kringum ljósið - og hann var sko ekki minna pirraður!!!
Eftir nokkrar mínútur af því að standa hálffrosin með banann og glasið læt ég til skarar skríða - stekk inn á bað og spreyja bananum í áttina að félaganum!!!
Fokk!!!
Hann bilaðist - gjörsamlega bilaðist!!! Aldrei hef ég séð geitung jafn brjálaðan!!! Hann flaug fram og til baka - klessti ítrekað á spegilinn og urraði - já hann urraði!!!
En - þar sem ég náði ekki að sprauta nógu vel á hann þá var hann ekkert að drepast!

Ok - staðan var semsagt orðin sú að geitungurinn er að fá flog inni á baði og ég stend fyrir utan með smá rifu á hurðinni - nógu stóra til að rétt sjá með öðru auganu inn!
Og þá gerðist það! Gaurinn flýgur frá speglinum að sturtunni - sem er ekki visible þaðan sem ég stend - og hverfur!!!
Great!

Eftir smá bið hætti ég mér inn því ég er ekki búin að verða vör við hann í smá tíma!
Þarna stend ég - í þetta sinn vopnuð Bana og skærum (ekki spyrja af hverju skærum!!!) og gaurinn er bara no where to be found!!!
Nú eru sko góð ráð dýr!!!
Svo ég fer yfir allt baðherbergið - hann var hvergi í loftinu eða á veggjunum og hann var ekki á gólfinu, ekki bak við þvottakörfu og ekki bak við þvottavél! Ekki í baðinu, sturtuhenginu, vaskinum, á baðborðinu eða klósettinu!!! Gaurinn er bara horfinn!!!

Eitt augnablik hvarflaði að mér sú skelfilega hugmynd að hann væri kannski í hárinu á mér eða á pilsinu svo ég hleyp fram og skoða mig alla í speglinum - en nei, ekki var hann þar!
Svo datt mér í hug að hann hefði kannski sloppið fram hjá mér og aftur inn í íbúð svo ég leitaði af mér allan grun - en nei, sé hann hvergi!

Svo nú er staðan þessi - ég sit inní stofu - alveg að pissa í mig - en ég þori sko ekki fyrir mitt litla líf að fara inn á klósett að pissa því ég bara veit að hann situr einhversstaðar í leyni og bíður eftir að ég girði niður um mig og setjist varnarlaus á dolluna!!!

Vill einhver hjálpa mér?!?!?!?!?!?!?

Ég er hrædd um að með þessu áframhaldi takist mér að byggja upp massífa partý-blöðru!!! ... og fara aldrei aftur í sturtu!!!

Guð hvað ég hata geitunga!!!

Stelpan