Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

fimmtudagur, september 14, 2006

Rockstar

Jæja - þá er það komið á hreint - Magni vann ekki Rockstar Supernova!

Nú skal ég viðurkenna það að ég hef fylgst mjög vel með Rockstar - meira að segja vakað nokkrum sinnum til að kjósa okkar mann!

Það var samt ekki fyrr en í gærkvöldi þegar verið var að sýna úrslitaþáttinn sem ég gerði mér grein fyrir hvað maður er í rauninni mikill auli að horfa á þetta!
Og ennþá meiri auli að vaka og kjósa!

Því þrátt fyrir að það hafi verið Íslendingur að keppa og að hann hafi komist langt í keppninni þá verður maður bara að vera hreinskilinn - þessir þættir eru langt frá því að vera gott sjónvarpsefni!
Og það pirraði mig dáldið að ég skyldi ekki gera mér fulla grein fyrir því fyrr en í lokaþættinum!

Ég skal segja ykkur af hverju þessir þættir eru ekki góðir: þetta var allt saman svo ótrúlega fyrirsjáanlegt! Ég veit eiginlega ekki af hverju ég var að horfa og bíða eftir úrslitum því ég vissi alveg nákvæmlega hvað myndi gerast!!!
Í fyrsta lagi - neðstu tveir! Það var auðvelt: Magni og Toby
Svo þurftu gaurarnir í Supernova að senda annan þeirra heim. Það var given: Magni
Þá stóðu 3 eftir og einn þurfti að fara heim. Aftur given: Toby
Og þá voru eftir 2 - og hver vann?! Það var mest given af öllu: Lukas

Svo þegar búið var að tilkynna sigurvegarann þá fór ég að hugsa. Það er svoooo langt síðan ég vissi að Lukas myndi vinna - en samt var maður að rembast að kjósa Magna og halda með honum því hann er Íslendingur! Ísland best í heimi og allt það. Og auðvitað var maður að vona að Magni myndi vinna - ekki það að ég væri eitthvað að bera hans hag fyrir brjósti - ég vildi bara vinna!!! Það er alltaf mjög mikilvægt!

Að sama skapi pirrar það mig að maður skuli oft hafa vakað langt fram á nótt til að horfa á einhvern þátt "í beinni" sem var löngu búið að taka upp!!! Fyrir þá sem ekki vissu þá voru hvorki tónleikarnir né úrslitin í beinni þrátt fyrir að vera auglýst þannig!

Já það er ekki laust við það að manni finnist eins og maður hafi keypt köttinn í sekknum að horfa á þessa þætti! Ég hefði getað sagt ykkur það í 3. þætti hverjir yrðu í topp 5 og ég hefði auðveldlega geta sagt hver ynni!

En - you live, you learn! Héðan í frá held ég að ég haldi mig bara við Bold og Americas next top model - það klikkar aldrei!!

Stelpan