Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, október 11, 2006

Dugnaður

Já, þó ég segi sjálf frá þá er ég ótrúlega dugleg!
Sit núna niðrí Skógarhlíð og er að bíða eftir næsta mælingar-fórnarlambi.
Og þetta er sko ekki fyrsta fórnarlambið - ó nei!
Ég er að mæla á morgnana, ég mæli um miðjan daginn og ég mæli á kvöldin! Ég mæli jafnt á virkum dögum sem um helgar! Og frídagar hafa ekki verið sérstaklega heilagir heldur!
Hver einstaklingur kemur tvisvar til þrisvar, hver mæling tekur um klukkutíma og fjöldi einstaklinga sem ég er búin að mæla er kominn veeeeel yfir 100!
Svo ekki sé minnst á undirbúning fyrir og útreikninga eftir hverja mælingu!!!
You do the math!
Það er því ekki að undra að ein stelpan sem er að læra sjúkraþjálfann og er því dálítið mikið hér í Skógarhlíðinni hafi komið inn til mín og spurt með undrun:
"Fyrirgefðu, en er einhver eftir á landinu sem þú ert ekki búin að mæla?!?!"
Það fannst mér fyndið!

Já, ef aðeins það væru allir jafn duglegir og ég!!!

Stelpan