Köben o.fl.
Ætli ég verði ekki að byrja á því að biðjast afsökunar á einstakri bloggleti síðustu daga og vikur!
Stundum bara kemur andinn ekkert yfir mann og þá þýðir ekkert að kreista eitthvað fram - maður verður bara að bíða þolinmóður!
Svo er ég líka ennþá svo skotin í myndinni af Þyrnirós að ég vildi leyfa henni að fronta síðuna eins lengi og ég kæmist upp með!!!
Allavega - ég held að það merkilegasta sem gerst hafi í millitíðinni sé að ég er búin að panta mér flug út til Köben!
Vúúúúúúúúúúhúúúúúúúúú!!!
Föstudaginn 27. október verður haldið í sannkallaða hópferð út til Kaupmannahafnar til að heimsækja hana Nínu mína!
Ég held það sé óhætt að segja að það verði stuuuuuuuuð! Nína er víst búin að plana einhver ósköp af skemmtilegheitum fyrir okkur!!!
Magnað - I can't wait!!!
Í framhaldi af utanlandspöntun minni fór ég svo að spá aðeins í þessu.
Fyrir um ári síðan hafði ég aldrei komið til Köben (millilendingar teljast ekki með) og þar af leiðandi skildi ég ekki hvað fólk var alltaf endalaust að tala um hvað Köben væri æði og frábær og yndisleg og að fólk vildi búa þar og bla bla bla!
Get over it people - þetta er bara borg!!!
Þess vegna finnst mér það dálítið kómískt að ég er að fara núna í 3. skipti til Köben á einu ári!!!
Og ég verð að segja að mér finnst Köben ÆÐI!!!
Svo - ætli ég sé ekki komin í hóp þeirra sem endalaust eru að tala um hina frábæru borg Kaupmannahöfn!!!
Síðan er annað - þessu algjörlega óskylt - sem mér finnst ég knúin til að tala aðeins um!!
Andfýla!!!
Í alvöru!!! Ég held að andfýla sé án nokkurs vafa það ógeðslegasta sem ég veit!!!
Nú fer ég reglulega í Baðhúsið og sprikla aðeins á brettinu eins og flestir hinir. Best finnst mér að fara kl. 16:20 því þá er Beverly Hills í sjónvarpinu og þá getur maður auðveldlega drepið tímann á brettinu! En stundum - eins og í dag - hentar mér betur að fara fyrr á daginn svo ég gerði það!
Allavega...
Ég er í leiðindum mínum að horfa á tónlistarmyndbönd þegar það kemur einhver pía á brettið við hliðina á mér og ég finn bara hvernig það kemur alveg gustur af andfýlu með henni!!!
Ok - svitalykt I can handle - en þetta er bara ekki í boði!!
Nú var ekki margt í stöðunni annað en að þykjast vera að horfa á sjónvarpið á brettinu hinum megin við mig og anda með munninum. Það var samt hálf misheppnað því það var alveg það sama í því sjónvarpi og á mínu sjónvarpi! Ég var komin að því að hætta bara fyrr og flýja þegar pían sjálf hætti og fór eitthvað annað!
Guði sé lof!
Nei í alvöru gott fólk - maður má vera sveittur og úfinn og hallærislegur í ræktinni en andfýla er ALDREI í boði! Kaupið ykkur tannbursta eða farið eitthvert annað!!!
Stelpan

<< Home