Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, október 31, 2006

Köben

Jæja - þá er maður kominn heim úr Kaupmannahöfninni.
Það er alveg með ólíkindum hvað þetta líður hratt allt saman - áður en maður veit er maður farinn út og kominn aftur heim! Og hvað bíður manns þá?!
Vinna!!! Og ekkert að hlakka til nema bara jólin!!!
Hnuss!!!

En Köben var æði - var við öðru að búast!!!
Einu vonbrigðin - sem voru samt töluvert stór vonbrigði - var verslunarpartur ferðarinnar!!
T.d. keypti ég enga skó!!!!! Ekki eitt einasta par!!!!
Skórnir þarna úti voru bara ekkert að kalla á mig og þeir sem voru eitthvað fínir voru ráááándýrir og í flestum tilfellum til hér heima fyrir svipaðan pening!!!
Svo var ég ekki alveg nógu sátt við HM!
Jú jú - don't get me wrong - ég kom heim með stútfulla ferðatösku og allt það - en það vantaði allt brálæðið í verslunina!!! Það vantaði að vera með fangið fullt af fötum sem maður hreinlega verður að eignast eins og stundum kemur fyrir!!!

Aðrir partar ferðarinnar tókust líka svona svakalega vel!
Fórum tvisvar út að borða og fengum svo hrikalega góðan og fínan mat í bæði skiptin!!!
Þetta var sko enginn McDonalds skal ég segja ykkur!!!
Samt á alveg ótrúlega reasonable verði verð ég að segja!

Svo má nú ekki gleyma tilgangi ferðarinnar - að hitta Nínu skvísu!!!
Það var alveg kominn tími á það enda voru það magnaðir endurfundir!!!

Annars var þetta bara hin ljúfasta ferð! Það helsta var hvað hún leið hratt - nú er ekkert framundan nema vinna vinna vinna fram að jólum!!!
Og talandi um það - verð að fara því nú er næsti hópur að koma!!!
Díses hvað maður er orðinn gamall!!!

Stelpan