Málstofan
Ég hef fengið þónokkrar fyrirspurnir varðandi málstofufyrirlesturinn minn.
Ég var semsagt að flytja fyrirlestur í málstofu í rannsóknatengdu námi við læknadeild - dæmi sem maður þarf að mæta í á hverjum fimmtudegi í 2 ár - og bara einu sinni þarf maður sjálfur að vera með fyrirlestur.
Fyrirlesturinn minn var semsagt um mastersverkefnið mitt.
Guð minn góður hvað ég var stressuð!
Á meðan fólkið var að hrúgast inn stóð ég upp við töfluna og leit út eins og ég hefði aldrei gert annað!
Í rauninni var ég alveg sveitt á bakinu!!!
Og það var alveg metþáttaka - allavega 40 manns - venjulega eru milli 20 og 30!!!
Allir svo spenntir að heyra mig tala!!!
Síðan hófst gleðin og það var mesta furða hvað þetta gekk vel!
Það var reyndar á einum stað sem ég ruglaðist aðeins - og ég leit út í hópinn og það fattaði ENGINN neitt - bara Tóti (leiðbeinandinn minn) glotti! Svo ég hélt bara áfram!
Og - þegar fyrirlesturinn sjálfur var búinn átti ég hálfpartinn von á því að ég yrði grilluð með spurningum - en það var alveg með ólíkindum hvað mér tókst að svara öllu vel og sannfærandi!!!
So - to sum up - a success!!!
Þið getið ekki ímyndað ykkur hversu glöð ég er að þessu er lokið!!!
Svo - nú get ég farið samviskulaust til Köben - en við leggjum af stað bara hvað af hverju!!!
Vúúúúúúhúúúúúú!!!
See ya later!!!
Stelpan

<< Home