Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, október 25, 2006

Tréð í garðinum

Fyrir utan eldhúsgluggann heima er risastórt tré.
Needless to say þá hefur þetta risastóra tré heilan haug af laufblöðum.
Það fyndna við þetta tré er að það fylgir ekki alveg sömu rútínu og önnur tré.

Þegar haustar fara flest tré að gulna smátt og smátt og laufblöðin hrynja af svona jafnóðum - en ekki tréð okkar.
Ég fór í vinnuna einn morguninn í síðustu viku og þá var tréð allt vel grænt. Þegar ég kom heim úr vinnunni um kvöldið var nánast hvert einasta lauf orðið gult!!

Það er eins og tréð bara taki bara ákvörðun einn daginn og þá verða ÖLL laufin gul!

Svo - þekkjandi tréð okkar - beið ég spennt eftir næsta stigi.
Fram til gærdagsins var hægt að telja á fingrum annarrar handar hversu mörg laublöð höfðu fallið af því.
Svo kom ég heim úr í gærkvöldi og sá að það voru 5-10 laufblöð fallin til viðbótar - og ég vissi sko hvað það þýddi!
Þegar ég vaknaði í morgun og leit út um gluggann þá var svona 80% af öllum laufunum hrunin af - og þau sem eftir sátu voru á fullu að hrynja líka!!!

Og laufblaðahaugurinn fyrir neðan tréð...!!!!
Díses - maður þarf alveg að vaða í gegnum hrúgurnar því laufblaðamagnið er alveg með ólíkindum!
Mín spá er sú að þegar ég kem heim í kvöld verði ekki eitt einasta lauf eftir á trénu!

Ég var samt svoldið svekkt að þetta skyldi gerast yfir nótt því í fyrra þá horfði ég á þetta gerast á innan við hálftíma.
Þá var geðveikt mikið rok og ég stóð inni í eldhúsi að éta hádegismatinn.
Svo kom vindhviða og ég horfði bara á hrúgurnar fjúka af trénu! Aftur kom vindhviða og aftur fauk alveg hrúga af!
Þegar ég loksins var búin að borða stóð tréð but naked eftir!
Það fannst mér gaman!!!

Talandi um tré með karakter!

Stelpan