Uppáhaldsbúðin mín!
Já, maður á sér oft einhverja uppáhaldsbúð sem maður bara verður að kíkja inn í þegar maður labbar fram hjá.
Fyrir einhverju síðan var t.d. Oasis uppáhaldsbúðin mín enda mátti maður varla fara þangað inn án þess að finna eitthvað sem maður hreinlega varð að eignast.
Svo eru að sjálfsögðu svona snilldarbúðir sem maður kíkir alltaf í - jafnvel þó maður kaupi ekki endilega eitthvað í hvert skipti - það er bara svo gaman að skoða. Þetta er búðir eins og Spútnik, Rokk og Rósir, og fleira í þeim dúr - sem og Tiger og Söstrene Grene!
En í dag er ég komin með nýja uppáhalds"búð".
ebay!
Ég elska ebay!!!
Ég held það skipti ekki nokkru einasta máli að hverju maður er að leita - það er til á ebay! Í mismunandi litum og stærðum!
Sem dæmi má nefna að ég er búin að leita hátt og lágt að bleikum skóm!
Þá meina ég ekki svona fölbleikum eins og maður sér í búðunum - heldur alveg hot pink!
Það endaði svo með því að ég fór á ebay og fann þessa líka BEAUTIFUL skó!
Þeir eru svoooooo fallegir!!! Og svoooooo bleikir! Ég hef bara ekki getað farið úr þeim síðan ég fékk þá!
Svo var ég að sækja sendingu í dag frá Hong Kong - geggjaða bleika tösku!!!
Guð hún er svo falleg!!!
Og ekki nóg með það - ég fékk hana á 0,99 pund!!! Einhverjar 125 krónur!
Við það bættist svo flutningskostnaður, tollur og vaskur svo heildarverðið var um 2.500 krónur - but who cares! Hún er æði!!!
Aðrir hlutir sem ég hef keypt eru t.d. síminn minn! Við skulum aldrei gleyma því hvað síminn minn er æðislegur og nákvæmlega hversu mikið ég elska hann!
Svo keypti ég um daginn geggjaða nælu - og sólgleraugun mín í sumar!
Þegar ég les yfir upptalninguna sé ég að flest það sem ég hef keypt er bleikt...
En svona er þetta bara - ef maður finnur ekki það sem mann langar í hér heima þá verður maður bara að leita út fyrir landsteinana!
Það næsta sem ég er að spá í að skoða eru einhverjir fabulous hanskar... og kannski hattur!
Kemur í ljós.
Annars er það helst að frétta að tölvan mín, hún Lísa, er formlega látin!
Endanlega í þetta skiptið!!!
Mér var tilkynnt það af viðgerðarfólki EJS að ég fengi nýja tölvu þar sem mín er búin að bila ómennskt oft!
Ég hef svona blendnar tilfinningar um þetta allt saman!
Auðvitað er ég sátt við að fá nýja tölvu! Einhver glæný týpa sem er víst miklu flottari og betri en mín gamla. Og vonandi á hún eftir að hafa lægri bilanatíðni en hin!
En á móti kemur að harði diskurinn er - enn á ný - farinn á vit feðra sinna, og hann tók að öllum líkindum allt innihaldið með sér!
Nú er ég enginn kjáni - ég er farin að taka backup svo missirinn er kannski ekki svo gríðarlegur!
En... hins vegar var ég allan síðasta föstudag að dunda mér í tölfræði fyrir fyrirlesturinn sem ég er að fara að halda á fimmtudaginn. Þetta er alls ekki erfitt eða flókið - þetta er bara brjálað tímafrekt, svo ekki sé á minnst leiðinlegt!
Og nei - ég var ekki búin að taka backup af því!
Meira að segja venjulega þegar ég er að gera eitthvað svona dæmi þá sendi ég mér það á email - þá er það alltaf á netinu og ég get opnað það hvar sem er - en... ég gat það ekki á föstudaginn því ég var að gera þetta uppí skóla og það er ekki ennþá búið að tengja HÍ-netið hjá mér síðan síðasti harði diskur/móðurborð (eða hvað það nú var) dó!!!
-andvarp-
En - þrátt fyrir allt hef ég nú tekið þessu með mesta jafnaðargeði.
Ég er bara búin að sætta mig við það að life is a bitch og við því er ekkert að gera - svo af hverju að pirra sig á því!
Þess í stað ætla ég bara að mæta galvösk niður í skóla í fyrramálið og gera tölfræðina upp á nýtt - enda ekki margt annað í stöðunni!
Svo má að lokum benda á það að það er ekki nema vika í Köbenferðina ógurlegu!!!
Ég er byrjuð að hita upp og æfa mig með debetkortið svo ég nái örugglega maximum eyðslu!!!
Guð þetta verður svo magnað!!!
Stelpan

<< Home