Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

mánudagur, nóvember 20, 2006

Beiskja

Mér var að berast sá beiskjulegasti tölvupóstur sem ég hef nokkurntímann fengið!

Í þessum tölvupósti var viss aðili sem ég var með link á að skipa mér að breyta tenglanafninu sínu.
Mér voru bókstaflega settir úrslitakostir!
Ekki það að hann hafi einhverntímann beðið fallega - þá hefði ég glöð breytt því! Einhverra hluta vegna virkar það betur á mig en úrslitakostir!
Nei - þessi maður trúir ekki á að biðja fallega - ég hugsa að hann myndi fyrr senda lögfræðinginn sinn á mig en að bara biðja!
Maðurinn er staddur hinum megin á hnettinum og honum tekst samt að go out of his way og koma fram við mig eins og skítinn undir skónum sínum - bara eins og hann hefur alltaf gert!

En - ég er búin að verða við óskinni - búin að fjarlægja linkinn!
Ég nenni bara ekki að fara að standa í einhverjum málaferlum!

Stelpan

p.s. Og by the way - ég veit þú átt eftir að kíkja á þetta til að vera alveg viss um að ég hlýði þér - þegar ég kynntist þér þá gekkstu undir þessu nafni. Þeir sem kölluðu þig þessu nafni voru t.d. systir mín svo ekki segja mér að þetta fólk tengist mér ekki neitt!!!