Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Jólaföndur

Svo ég haldi áfram meðmælum um hvað er hægt að gera sér til dundurs í skammdeginu þá vil ég benda öllum á að fara inn á þessa síðu og búa til snjókorn!
Verulega skemmtilegt!
Ef þið viljið sjá mín getið þið leitað eftir DÓRAROKK - þá sjáiði mín bestu!

Annars er það helst að frétta að okkur hefur verið meinaður aðgangur að portinu okkar þar sem það er byrjað að rífa húsin í kring! Ætli þeir séu ekki hálfnaðir með að rífa allan pakkann og eftir situr ekkert nema rústirnar.
Mest er ég svekkt yfir bílastæðunum sem yfirleitt hafa ekki verið af skornum skammti - nú er barist fyrir hverju og einu!
Samt finnst mér það gott á KB-banka liðið sem leggur alltaf í portinu mínu á daginn og tekur upp öll stæðin! Það virðast vera skilyrði fyrir starfi hjá KB-banka að kunna ekki að leggja því hver einasti bíll tekur 2 stæði!!!
Pakk!
En, ekki lengur því portið... that's history!

Svo... næst þegar þið komið í heimsókn - komið labbandi!

Stelpan