Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

laugardagur, nóvember 04, 2006

Ökuníðingur

Ég fór upp á Smáratorg áðan að kaupa afmælisgjöf hana henni Írisi - en hún átti einmitt afmæli í gær - til hamingju með daginn enn á ný!

Allavega, ég er að labba aftur í bílinn minn og það var bíll sem var greinilega að bíða eftir stæði eða eitthvað - og hann stóð kyrrstæður alveg beint fyrir aftan minn bíl á bílastæðinu.
Þessi bíll var svona einhverskonar jepplings-station bíll eitthvað! Semsagt ekkert brjálað stór og með flatan rass (ekki útstandandi skott).

Heyrðu - ég labba út á bílastæðið og aftur fyrir þennan bíl til að komast í minn.
Nema hvað - akkúrat þegar ég labba aftur fyrir bílinn sé ég að hann setur í bakk og keyrir á mig!!!
Við erum að tala um það að ég fékk bílinn bara í fangið!!! Ég hrökklast eitthvað aftur en er samt alveg hálf-kyssandi bílinn!!! Ef þetta hefði verið bíll með skott þá hefði ég alveg bókað lent uppi á honum!

Ég í einhverju panikki slæ í afturrúðuna og hann stoppar - guði sé lof!
Og ég - alveg brjáluð - lamdi gjeeeeðveikt fast í bílinn sjálfan! Kæmi mér ekki á óvart þó það hefði komið dæld!
En merkilegt nok - bílstjórinn kíkti ekki einu sinni út!!!
Svo ég labba aftur framfyrir - nema núna farþegamegin - og þar situr einhver kelling og horfir á mig eins og fáviti!
Ég öskra á hana eitthvað um það hvort það sé ekki í lagi með þau og það eina sem ég uppsker er einhver álkulegur svipur - svo keyra þau í burtu!!!

Ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti að skrifa niður númerið þeirra og bara hringja á lögguna en - þekkjandi lögregluna vissi ég að þeim gæti ekki staðið meira á sama - myndu áreiðanlega bara hlæja að mér og eflaust gefa þessum hálfvitum orðu eða eitthvað!
Og ég meina - það er heldur ekki eins og ég hafi verið í einhverri bráðri lífshættu eða eitthvað!
En ég hefði samt haldið að þegar maður keyrir á einhvern - hvort sem það er alvarlegt eða ekki - þá stingur maður nú allavega hausnum út og spyr hvort það sé í lagi með viðkomandi!!!

Einnig hugga ég mig við það að ég lamdi duglega í bílinn! Ef guð var með mér náði ég að dælda hann og það verður þá bara að nægja sem þeirra refsing!
Það versta er að ég er hálf aum í hendinni - hún er svona minna vön því að lemja bíla!

Ég hef sagt það áður og ég stend fast við það - það er stórhættulegt að vera í umferðinni í Reykjavík (eða í þessu tilfelli - Kópavogi!!!)

Stelpan