Stelpan

Af hverju að hafa svart þegar maður getur haft bleikt!

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Skotárás

Ég var að kenna í morgun. Þegar tíminn var búinn tók við einhver klukkutíma matarpása áður en næsti tími átti að byrja svo ég rúllaði heim í hádegismat.

Ég legg bílnum í portinu heima og tek eftir því að löggubíl og 2 sérkennilegum sendiferðabílum ("vans") var lagt beint fyrir utan húsið mitt.
Nú er búinn að vera óvenju mikill umgangur lögreglu um þetta svæði síðustu daga svo ég dró þá ályktun að þessir stóru "vanar" hlytu bara að vera the swat team!

Jú jú - nema hvað - ég fer út úr bílnum (sem er by the way lagt ca 10 metrum frá yfirgefna húsinu sem er beint á móti mínu) og þar sem ég er að læsa honum heyri ég eitthvað kall og svo þessi meiriháttar skot-sprenging!
Ég segi sprenging því hávaðinn var gífurlegur - þetta var næstum því vont!!
Strax á eftir kemur "hlaða aftur hljóð" og annað skot!
Aftur "hlaða aftur hljóð" og skot!

Mér leið eins og ég væri stödd á vígvelli!!!
Ég stóð - eins og auli - með lykilinn í skránni og lokuð augun - vonandi að ég yrði hreinlega ekki skotin niður fyrir utan húsið mitt!!!

Svo þegar látunum linnti stökk ég inn - alveg nett skelkuð!
Og svo hélt hávaðinn bara áfram!
Ég sat og var að borða hádegismatinn og alltaf reglulega var skotið og maður hálfpartinn hrökk við lætin!

Síðan tékkuðum við á þessu og þá kom í ljós að þetta var vissulega sérsveitin sem var þarna inni að æfa sig.
Það versta fannst mér að þeir eru með alvöru kúlur en engin púðurskot - mér er svona mátulega vel við það verandi alltaf að þvælast þarna framhjá og búa í næsta húsi!
Ég veit að þessir gaurar eiga að vera vel þjálfaðir og allt það en - slysin gerast - þetta hús sem þeir eru að skjóta í tætlur er alveg síst traustvekjandi!!!

Ég hugsa að ég reyni bara að halda mig fjarri á meðan þeir eru að standa í þessum skotæfingum - ég er hrædd um að ég hafi bara ekki taugar í annað!!!

Talandi um að búa í gettóinu!!!

Stelpan